Jæja jæja löngu kominn tími á nýtt innlegg. Sumarið er búið að vera alveg frábært, eins og ég hef sagt erum við búin að vera með fullt af fólki hjá okkur sem við getum nú varla kallað gesti en alveg frábært að fá þau. Við fórum í endann júní til Bornholm í sumarbústað í viku. Ég get ekki sagt annað en að það hafi verið frábært, húsið sem við vorum í var æði, veðrið var 25 stiga hiti og glampandi sól allann tímann og við nutum þess alveg í botn. Við skoðuðum eins mikið og við gátum, eyjan er rosalega falleg og hefur upp á svo margt að bjóða. Þannig að það er alveg nóg af efni í aðra ferð……
Síðan átti nú prinsessan á heimilinu afmæli 10.Júlí (til hamingju með það skottan mín) og það var haldið upp á það með tilheyrandi veitingum og góðu veðri. Rosalega fínn dagur og stelpan alveg hæstánægð með allt saman.
“Gestirnir” okkar eru nú allir farnir heim og við viljum þakka þeim fyrir frábært sumar, við hefðum ekki viljað gera þetta öðruvísi. Takk , takk fyrir okkur!!!!!
Nú er svona einhver hversdagsleiki að detta inn. Kiddi er byrjaður að vinna á fullu, á morgun förum við til Helsingør svo að hann geti skrifað undir nýja samninginn og þá er það allt klappað og klárt, og hann byrjar á nýja staðnum í ágúst. Óliver er byrjaður á nýju deildinni sinni og það gengur bara ágætlega, enn er mikið að starfsfólki í sumarfríi, og flest allir vinir hans eru einnig í fríi þannig að hann er stutta daga á leikskólanum og er komin heim upp úr 2 leytið. Jasmín er farin að hlakka til að byrja í 2.bekk (3.bekk á íslandi) og svo er hún líka að fara að byrja í tónlistarskólanum á kontrabassa, þannig að þetta verður spennandi vetur hjá henni.
Ég er búin að taka fullt fullt af myndum og nú þarf maður að fara að taka sig saman og koma þessu inn þannig að fleiri geti notið þeirra. Er ekki búin að ákveða hvort það verður Flickr eða Facebook en ég læt ykkur vita svo þið getir nú kíkt á þetta allt saman.
Kveðja í bili úr hitanum og góða veðrinu hér, fullt af sumri eftir hér hi hi hi………..





