Ísland fagra Ísland

Við erum búin að vera hér á Íslandi núna í viku í frábæru yfirlæti. Allir hafa dekrað við mann og það er ekki hægt að kvarta yfir neinu. Ég verð nú samt að segja að sumt kom mér á óvart, húðin á mér er skrælnuð vegna kulda og rakaleysis, varirnar að springa vegna sömu ástæðu og svo eru öndunarfærin að aðlagast að vera ekki í sama raka. Hi hi hi ferlega skrýtið. Brá svolítið þegar ég fór í sturtu í 1.skipti , ég var alveg búin að gleyma prumpulyktinni af vatninu, var svona eins og þegar ég flutti fyrst til Reykjavíkur.

Áramótin voru frábær, við vorum í mat hér í Vallarásnum og svo seinna um kvöldið fórum við öll sömul í Álfabrekkuna til tengdó. Það var sprengt alveg rosalega og ég held að Tómas hennar Söndru hafi verið einna rosalegastur, alla vegana þá fóru kökurnar hver af annarri.

En nú fer að styttast í heimför, alveg magnað hvað maður á heima á mörgum stöðum, fórum heim til Íslands og svo erum við á leiðinni heim á föstudaginn líka. Er nú pínu farin að hlakka til að komast aftur heim í Hørsholm, aðallega vegna þess að ég sakna litlu systur og svo er veðrið hér búið að vera svakalegt. En hlakka til að komast heim og byrja  í skólanum næsta mánudag.

5 Responses so far »

  1. 1

    Elín systir said,

    sakna þín líííííka… ótrúlega hvað þú ert búin að skilja mig eftir lengi hjá þessum dönum…grát ;)

  2. 2

    Íris Dögg said,

    Gott að heyra að þið nutuð dvalarinnar hér með varaþurrk, prumpulykt, og skrælnuðu andliti…jah svona er þetta…enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur…hehehe….saknar þú þessa ekki????

    Nei nei, ísland er best í heimi auðvitað þrátt fyrir sína galla…kostirnir vega þetta upp…bíddu hverjir eru þeir aftur????

    Kossar og knús og gleðilegt nýtt ár!!!!

  3. 3

    mamma said,

    Það var alveg æðislegt að hafa ykkur, það er nú svolítið tómlegt hér hjá okkur. Ég vona að þið hafið það gott og húðin þín fari að skána.

    Kær kveðja frá okkur í Vallarási 3

  4. 4

    mamma said,

    Til hamingju með brúðkaupsafmælið.

    Hringi í þig bæbæ.

    Mamma og pabbi í Vallarási

  5. 5

    Sandra systir said,

    Næst þegar þið komið þá skal ég muna að hafa stóra dollu af rakakremi tilbúna fyrir þig til að hoppa ofan í ;)
    En ég segi bara eins og mamma, það var æðislegt að hafa ykkur hérna. Ég er strax farin að sakna ykkar allra og hlakka mjög til að hitta ykkur aftur.

    Bara 69 dagar í páskafrí… vúhúúú!!!


Comment RSS · TrackBack URI

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.