Það kemur alltaf sá dagur á vorin , þegar ég labba út um dyrnar og finn tilfinninguna að ég eigi heima í útlöndum. Ég elska þessa tilfinningu, ég er örugglega minnsta vetrarmanneskja sem ég veit um , og það að koma út og það er hiti í loftinu og þú finnur fyrir vorinu, það er ekkert betra……..
Sem þýðir að nú er ég búin að þrífa grillið from top to bottom, bera viðarvörn á húsgögnin úti, er að fara að kaupa mér blómapotta til að setja niður kryddjurtir og tómata, búin að þrífa sessurnar og sópa alla veröndina. Alveg tilbúin fyrir vorið og sumarið!!!
Annars er allt gott að frétta af okkur, ég er búin að vera að vinna að 2 verkefnum síðan ég kláraði skólann, og er að klára síðuna fyrir Danica sem þau ætla að nota. Svo er auðvitað fyrirtækið okkar, stelpurnar rosa duglegar að vinna í því , við erum búnar að finna nafn og hönnunin á útliti síðunar og logoi er að fæðast. Samsagt allt í fínasta lagi. Er að fara núna og fá mér vks númer á kennitöluna mína svo ég geti nú farið að gefa út reikninga á þessa vinnu sem ég er búin að vera svo dugleg með…….
Veðrið er eins og áður sagði mjög fínt, vorið er að koma, sólin farin að skína og nú er búið að skrúfa niður í öllum ofnum og þeir ekki notaðir fyrr en næsta vetur.
Það er mjög mikið af vörum í búðum sem maður kaupir bara á sumrin bæði vegna þess að þær fást ekki eða þær eru svo dýrara að manni dettur ekki í hug að kaupa þær á því verði. Þannig að nú er maður farinn að kaupa jarðarber, hindber og ferskjur á fullu, bíðum eftir vatnsmelónunni og fetaosti í olíu (hafið þið prófað það saman mmmmmmmmm).
Vorkveðjur héðan úr Byporten



mamma said,
April 1, 2008 @ 3:56 pm
Ég er farinn að öfunda ykkur það fer vonandi að koma vor hér líka.
Það er vonandi að maður geti fengið að prófa svalirnar í sumar hihihi .
ástarkveðju til ykkar frá mömmu og hinum ölllum í Vallarási
Íris Dögg said,
April 1, 2008 @ 9:48 pm
Æ hvað ég er sammála þér, skil ekkert í því af hverju ég get ekki bara lagst í dvala á veturna….get ekki beðið eftir vorinu og hvað þá sumrinu, krosslegg fingur og bið til þess sem öllu ræður að sumarið verði GOTT!!!
Síðan þín orðin ansi vorleg líka….en hvað er með þetta fyrirtæki ykkar? Hvernig fyrirtæki er þetta…??? Hefur alveg farið framhjá mér ef þú hefur eitthvað fjallað um það áður!!!!!!!
Vonandi vorar í lofti fljótlega svo hægt sé að fara að grilla, nota kryddjurtirnar á kjötið og sitja úti að sötra ÖL….MMmmmmmmmmm
Vorkveðja frá Fróni
Elín systir said,
April 7, 2008 @ 11:01 am
Dugleg ertu og meira að segja komið vorlúkk á þessa síðu hjá þér
En ég er alveg sammála þér það koma þessir ákveðnu punktar sem maður allt í einu man að maður á heima í útlöndum… til dæmis eins og þegar það hleypur íkorni framhjá manni þegar maður er að labba eða keyra… lovely
Og svo sem meðlimur í fyrirtækinu Triloo get ég sagt þér það Íris að þetta verður algert snilldarfyrirtæki… við komum til með að þjóna öllum þínum margmiðlunarþörfum… he he he… og ég held það sé rétt hjá þér að Lilja hefur ekkert skrifað um það áður.