Jæja þá kom maður sér inn fyrir og skrifar svona hvað er búið að vera að bralla. Fyrst og fremst er veðrið búið að vera alveg frábært og maður notar hverja fría mínútu til að baða sig í sólinni. Svo er búið að vera nóg að gera hjá mér í vinnunni, ég er semsagt farin að vinna freelance og er búin að vera að vinna fyrir Össur á Íslandi og er með verkefni alveg fram á haust að minnsta kosti og sko ekkert smá ánægð með það, vonandi að þau halda bara að vera jafn ánægð með mig og þau hafa verið.
Svo eru tengdó að koma og kíkja á okkur um næstu helgi og ætla að vera í viku, það verður alveg frábært að hitta þau og fá að hafa þau hjá okkur. Svo eru náttúrulega allir farnir að hugsa til sumarsins og hlakka til að taka sér smá frí. Við ætlum í sumarbústað á Bornholm í endann á Júní og það verður voða gaman og mig er búið að langa að fara þangað alveg heillengi

Ég enda svo með veðurspánni fyrir næstu viku, gott að geta unnið heima og skroppið út í sólina svona þegar maður fær tíma. Mont mont he he he



Íris Dögg said,
May 12, 2008 @ 11:08 pm
Já eiginlega ertu bara MONTRASS….heheheh
Gaman að heyra að þú hafir nóg að gera og allt sé í lukkunnar velstandi….keep up the good work!!!