Eurovision

Jæja þá er Eurovision skollið á eina ferðina enn. Það að keppnin skuli nú vera 3 kvöld er nú ekki slæmt. ég hreint út sagt elska Eurovision og hef átt ófáar keppnirnar á vídeóspólum sem var horft á þangað til að spólan gat ekki meir. Ég verð nú að segja að ég sakna þess pínulítið þegar að hvert land söng á sínu tungumáli en það er nú farið að aukast aftur að lönd velji það að syngja á sínu máli.
Ég varð nú fyrir miklum vonbrigðum með Dani þegar að þeir sýndu ekki fyrst kvöldið sem var á þriðjudaginn, sýna greinilega bara það sem Danir keppa og þá er bara að vona að þeir komist áfram í úrslitin annars verð ég að sætta mig við sænskan þul eins og á þriðjudaginn. Eins líka þoli ég ekki hvað mikið af þessu er orðinn hreinn skrípaleikur, sum lögin voru hreint og beint rugl eins og til dæmis Írland, ég meina come on Írland hvað kom fyrir.

Eurovision er voða viðkvæmt fyrir mér og ég á mjög auðvelt með að líka vel við lög þó svo að ég hafi ekki hugmynd um hvað verið er að syngja um, eins og til dæmis sigurlagið í fyrra. En ég hlakka mikið til að sjá keppnina í kvöld og auðvitað vonar maður það besta fyrir Ísland, komi tími til að við komumst í úrslitin. En ég er tiltölulega ánægð með þetta nýja fyrirkomulag og held að það þaggi aðeins niður í þessum sem endalaust röfla um svindl og klíkuskap.

Áfram Eurovision

Advertisement

3 Responses so far »

  1. 1

    mamma said,

    Guðni er ekki glaður núna þú veist að hann þolir ekki Eurovison. Vi Sandra erum glaðar vonað bara að það gangi vel.

    Kveðja frá okkur öllum á Íslandi.

  2. 2

    Elín systir said,

    Hva lestu ekki frettir eda hvad?
    Thad var allt tilbuid i utsendingu a DR1 fyrsta kvøldid thegar ad “spølan” var skemmd og thurfti ad fresta um einn dag… ha ha ha

  3. 3

    Íris Dögg said,

    Jiiiiiiiii….sammála þér, ég elskaði eurovision en það er nú svolítið breytt, mér finnst sjarminn svolítið farinn af þessu síðan hljómsveitin hvarf og tölvutæknin tók völdin og allir mega syngja á ensku….þetta er ekki alveg það sama…….

    Var einmitt að hugsa til þín á laugardaginn og minntist þess að okkar uppáhaldslag eitt árið var frá Möltu…manstu eftir því??
    Ég man ekki lengur hvernig það var en við hlustuðum á það aftur og aftur….best að prófa að googla eða youtuba það……

    Kveðja,
    Íris


Comment RSS · TrackBack URI

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.