Gleði og ánægja

Við getum nú ekki sagt annað en að við séum búin að hafa það alveg rosalega fínt og notalegt. Veðrið er búið að vera alveg frábært og grillið notað óspart. Ég er búin að koma mér upp fínum kryddjurtum úti á verönd, basil, tómötum, dill, oregano og graslauk. Svo setti ég niður myntu í tilraunaskyni og hún dafnar jú svona rosalega vel að ég sé fram á að Mohito verði á morgunverðarborðinu næstu vikurnar………
Svo er ég með ólífutré fyrir utan hjá mér og í gær keypti ég lavenderblóm, og það er ekkert smá góð lykt af því, svona smá tilraun í að róa krakkana og kannski kallinn líka??

Kiddi er að klára önnina sína, síðustu 2 prófin verða í þarnæstu viku og svo tekur vinnan við fram að janúar. Það gengur rosalega vel hjá honum og hann er alveg hörkuduglegur, svo þarf að hann að safna saman fram að janúar sjónprufum hjá ákv. fjölda fólks innan 35 ára, þannig að nú er tíminn til að fara að koma sér í sjónpróf !!!!!

Krakkarnir blómstra alveg þegar sólin skín og það er erfitt að koma þeim inn á kvöldin. Þau eru auðvitað alveg farin að bíða eftir sumarfríi sérstaklega þar sem við fáum svo mikið að gestum og á eftir að verða örugglega alveg svakalega gaman hjá okkur. Óliver flytur á stærstu deildina í Júlí þar sem undirbúningur fer fram fyrir skólann. Danir mega reyndar alveg eiga það að þeir eru rosalega duglegir að meta krakka eftir aldri og getu ekki eftir einhverju fyrirfram ákveðnu skólaári. Við vitum alveg að það getur verið mikill munur á barni sem fætt er í janúar eða barni sem fætt er í desember, og þeir bjóða þessum börnum óspart að koma í skóla fyrr ef þeim finnst þau vera tilbúin. Sem mér finnst ekkert nema gott.

Ég er á fullu að vinna og ég get nú ekki sagt annað en að ég er mjög ánægð með að geta unnið svona heima. Það er búið að vera nóg að gera hjá mér og frábært að geta skellt sólhlífinni upp og tölvuna út og bara unnið. Hún Heiða sem ég vinn fyrir alveg frábær og stundum þarf ég aðeins að klípa í mig og átta mig á því hvað ég er heppin að hafa þetta.

En allir hressir og kátir og sólarkveðjur héðan úr Hørsholm

Advertisement

2 Responses so far »

  1. 1

    mamma said,

    Voðalega er þetta að verða fínt á svölonum maður getur bara setið á svölonum og borðað úr kryddjurtagarðinum. Annars er allt gott að frétta héðan hafið þið það sem allra best sjáumst fljótlega.

    Kveðja frá Íslandi

  2. 2

    Íris Dögg said,

    Frábært að heyra hvað allt gengur vel…..mmmmmm…líst vel á þig og allar plönturnar og þá sérstaklega myntuna og mohito…Mmmmmmm….
    Virkilega huggulegt og líkast til er anganin góð, var einmitt að planta myntu fyrir utan eldhúsgluggann minn!!!!

    Njótið blíðunnar!!


Comment RSS · TrackBack URI

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.