Sumarfrí og margt annað!!!

Jæja jæja nóg að gera hér á heimilinu. Í dag er síðasti dagurinn hjá Jasmín og Óliver í skóla og leikskóla, nú tekur við 4 vikna sumarfrí hjá Óliver og eitthvað aðeins lengra hjá Jasmín. Kiddi verður í 3 vikna fríi með þeim og svo tek ég við. Þau eru mikið búin að hlakka til þess að komast í frí og eru voða glöð með þetta. Á morgun kemur svo Steini til okkar og erum við ekkert smá spennt með það, það verður rosalega gaman að fá hann til okkar og hann verður hjá okkur í heilan mánuð :) Svo er auðvitað að koma fleiri gestir þar sem mamma og co koma á miðvikudaginn, og veðurspáin er aldeilis búin að breytast það á að hætta að rigna á mánudag þannig að vonandi fáum við gott veður. Annars er nú ekki hægt að kvarta , þó það komi skúrar þá fer hitinn ekki niður fyrir 18 gráður og það er voða milt og gott veður.

Ég verð að vinna vonandi á fullu í sumar, búið að panta þráðlaust internet þannig að nú er hægt að vinna á fullu á Bornholm líka hi hi hi.
Kiddi fór í eina viku í vinnu áður en að hann fer í sumarfrí, en svo eru breytingar hjá honum. Hann fór í viðtal um daginn hjá verslun í Helsingør og þau vilja gera allt til að fá hann. Þannig að nú er allt á fullu að hagræða hlutunum þannig að hann geti vonandi byrjað hjá þeim í ágúst. Duglegur kallinn…….

Við vorum nú ferlega ánægð með okkur um daginn, vorum á leikskólanum hjá Óliver og þá fór einn leikskólakennarinn að undrast á því að við værum að tala annað tungumál af og til. Kiddi útskýrði fyrir henni að við værum að tala íslensku því við kæmum frá Íslandi. Hún varð mjög undrandi og sagði að hún hefði haldið að við kæmum frá Jótlandi , við töluðum mjög góða dönsku en hún heyrði sterkan hreim en hélt að við værum bara ekki héðan frá Sjállandi. He he he danskan rokkar …………
Aldrei hélt ég nú samt að ég ætti eftir að segja þetta, þegar ég var yngri HATAÐI ég dönsku og Danmörk var síðasta landið sem ég ætlaði að heimsækja…. svona getur þetta verið skrýtið.

En jæja best að fara að eyða helginni í tiltekt og þrif fyrir komu gestanna , ekki getur maður látið mömmu sjá draslið hjá sér ????????

Advertisement

4 Responses so far »

  1. 1

    perína Sigurðardóttir said,

    Lilja Björk viltu hætta þessari vitleisu við hjálpumst að með þetta og svo er ekki drasl hjá ykkur.En rosalega verður gaman að sjá ykkur öllsömul.Ég vildi að ég væri svona dugleg að tala dönsku ég verð bara að koma sem auper hihihi.

    Biðjum öll að heilsa hlökkum til að sjá ykkur.

    BæBæ mamma og co.

  2. 2

    Sandra said,

    Það verður svo gaman að hitta ykkur “Jótlendingana” aftur, hehehe… eftir aðeins 3 daga!!! Vá hvað tíminn líður fljótt.
    Aðeins fleiri dagar þangað til við förum öll til Bornholm, það er allt í lagi… ég get þá hugsað um hvað ég á að taka marga lítra af sandi með mér til baka, hehehe. Gefum bara skít í hönnun og förum að framleiða stundarglös :P

    Kv. litla systir

  3. 3

    Elín systir said,

    ha ha ha þið eruð alveg að brillera í dönskunni :D
    Hlakka annars til að kíkja á ykkur í vikunni þegar restin af gestunum er kominn, vona að þið njótið rigningarinnar í fríinu, sólin má skína aftur á morgun þegar lærdómurinn er búinn…

  4. 4

    Dóra Hanna said,

    Vá það er sko allt of langt síðan ég kíkti á síðuna þína síðast, var greinilega með einhverja gamla síðu sem var alltaf læst og svona en fann síðan þessa.
    Innilega til hamingju með útskriftina Lilja Björk þó seint sé;-)
    Hafið það gott í sumar og góða skemmtun með öllum gestunum.

    Kram fra Aarhus, Dóra Hanna og gengið


Comment RSS · TrackBack URI

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.